flugfréttir

Nánast allt flug á vegum Ryanair mun leggjast af

- Sjá fram á að leggja næstum öllum flotanum eftir 24. mars

18. mars 2020

|

Frétt skrifuð kl. 14:55

Ryanair hefur yfir 300 þotur í flota sínum

Ryanair gerir ráð fyrir að hætta að mestu að fljúga og fella niður nánast allt áætlunarflug frá og með 24. mars næstkomandi vegna þeirra áhrifa sem COVID-19 hefur haft á flugið en frá og með miðnætti í kvöld mun félagið aðeins fljúga um 20 prósent af þeim flugferðum sem fyrirhugaðar voru.

Félagið gerir ráð fyrir að einungis verði um örfáar flugferðir að ræða sem farnar verða á milli Bretlands og Írlands til að viðhalda nauðsynlegum flugsamgöngum milli eyjanna.

Ryanair segir að flestar þotur í flotanum verði kyrrsettar á næstu 10 dögum en félagið hefur lýst því yfir að flugáætlun félagsins muni dragast saman um allt að 80% á næstu tveimur mánuðum með möguleika á því að allur flotinn gæti orðið kyrrsettur ef allt fer á versta veg.

„Ryanair mun halda áfram að vera í nánu sambandi við ríkisstjórnir Evrópulanda og Evrópusambandið í samræmi við þau viðbrögð og aðgerðir sem gripið hefur verið til vegna útbreiðslu veirunnar“, segir í yfirlýsingu frá Ryanair.

Flugfloti Ryanair samanstendur af 309 þotum af gerðinni Boeing 737-800 og verður flestum komið fyrir í geymslu en félagið hefur að öllu jöfnu flogið 2.400 flugferðir daglega.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga