flugfréttir

Delta ætlar að leggja 600 þotum

- Ætluðu upphaflega að leggja þrjú hundruð flugvélum

19. mars 2020

|

Frétt skrifuð kl. 11:22

Farþegaþotur Delta Air Lines

Sífellt fleiri flugfélög í heiminum tilkynna um þær niðurskurðaraðgerðir sem þau munu grípa til vegna samdráttar í farþegaflugi í kjölfar heimsfaraldursins vegna COVID-19.

Delta Air Lines hefur tilkynnt að félag muni á næstunni leggja 600 flugvélum sem samsvarar 2/3 flugflotans. Þetta er einn mesti fjöldi sem flugfélag hefur stefnt á að leggja vegna útbreiðslu kórónuveirunnar enda um að ræða eitt stærsta flugfélag Ameríku.

Delta Air Lines er 2. stærsta flugfélag Bandaríkjanna er kemur að flugflota með 913 flugvélar í flotanum en American Airlines er það stærsta með 945 flugvélar í sínum flota.

Flugvélar Delta Air Lines á Hartfield-Jackson flugvellinum í Atlanta

Delta hafði lýst því yfir fyrir 5 dögum síðan að félagið myndi skera niður umsvifin um 40% með því að kyrrsetja 300 flugvélar en núna hefur félagið greint frá því að félagið muni skera niður áætlunarflug um 70 prósent og leggja um 600 flugvélum.

Stjórnendur félagsins ætla að taka á sig allt að 50% launalækkun og þá verður afhendingum á nýjum þotum slegið á frest og gamlar flugvélar teknar fyrr úr umferð en ráðgert hafði verið.

Þá eru starfsmenn hvattir til þess að taka að sér launalaust leyfi en nú þegar hafa 10.000 starfsmenn Delta tekið sér leyfi og hefur Ed Bastian, framkvæmdarstjóri félagsins, þakkað þeim starfsmönnum sérstaklega fyrir að bregðast svo við.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga