flugfréttir
Tryggja rekstur Finnair
- Veita félaginu ríkisábyrgð upp á 90 milljarða króna
Airbus A320 þota Finnair
Ríkisstjórn Finnlands hefur komið flugfélaginu Finnair til bjargar með því að veita félaginu ríkisábyrgð upp á 90 milljarða króna til að tryggja rekstur félagsins.
Finnair er ríkisrekið flugfélag en finnska ríkið á 56 prósenta hlut í félaginu og segir Tytti Tuppurainen, eignarstýringarráðherra
landsins, að ástandið í dag sé orðið með þeim hætti að það hafi verið nauðsynlegt að bregðast við og tryggja rekstur
félagsins.
Fram kemur að Finnair þjóni mjög mikilvægum tilgangi fyrir efnahag finnsku þjóðarinnar þar sem leiðarkerfi
félagsins er mjög víðtækt bæði er varðar farþegaflug og fraktflug.
Topi Manner, framkvæmdarstjóri Finnair, segir að flugiðnaðurinn sé að standa frammi fyrir þá erfiðustu tíma
sem upp hafa komið í sögunni en tók samt fram að flugfélagið sé mjög vel í stakk búið fyrir þessa krísu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.