flugfréttir
Compass Airlines hættir rekstri vegna COVID-19
- Hafa sinnt innanlandsflugi fyrir Delta Connection og American Eagle
Compass Airlines hefur sinnt flugrekstri fyrir Delta Connection og American Eagle
Bandaríska flugfélagið Compass Airlines hefur tilkynnt að félagið muni hætta starfsemi þann 7. apríl.
Compass Airlines er eitt af þeim flugfélögum sem sinnir flugrekstri fyrir dótturfélög stærstu flugfélaga Bandaríkjanna
í innanlandsflugi en félagið hefur flogið m.a. fyrir Delta Connection og American Eagle.
Í tilkynningu sem Compass Airlines sendi frá sér í gær kemur fram að félagið muni hætta rekstri vegna gríðarlegs samdráttar í eftirspurn á flugsætum sem tengja má við ótta meðal farþega að fljúga vegna
útbreiðslu kórónaveirunnar.
Compass Airlines var í þann mund að ganga frá samningi við Delta Air Lines en áhrifin af völdum
COVID-19 voru orðin
of víðtæk en aðeins eru 18 dagar síðan að systurfélagið, Trans States Airlines, tilkynnti einnig um að félagið
myndi hætta rekstri en það félagið hefur flogið m.a. fyrir United Express.
Compass Airlines hefur haft 32 þotur í flotanum af gerðinni Embraer E175 en floti félagsins mun fara yfir til
Republic Airways og til Envoy sem taka yfir flugrekstrinum fyrir Delta Connection og American Eagle.
Compass Airlines var stofnað sem Northwest Airlink árið 2006 í kjölfar ágreinins varðandi kjaramál
meðal flugmanna hjá Northwest Airlines en Delta Air Lines keypti reksturinn árið 2010 eftir að Northwest Airines
varð gjaldþrota.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.