flugfréttir
„Nýja“ Alitalia mun hafa aðeins 25 til 30 flugvélar
- Skera niður um 3/4 af þeim 113 flugvélum sem félagið hefur haft
Alitalia hefur hingað til haft 113 flugvélar í flotanum en verða aðeins 20 til 30 í vor
Ítalska flugfélagið Alitalia mun verða mun smærra í sniðum eftir enduruppstokkun félagsins í kjölfar ríkisvæðingarinnar og verður félagið til að byrja með aðeins um 25 til 30 flugvélar í flotanum.
Tuttugu til þrjátíu flugvélar er aðeins fjórðingur af þeim 113 flugvélum sem Alitalia hefur í flotanum og þá samsvarar
25 til 30 flugvélar þeim fjölda véla sem eru nú þegar að fljúga í dag vegna COVID-19 heimsfaraldursins.
Þetta sagði Giuseppe Leogrande, sérskipaður fulltrúa ítölsku ríkisstjórnarinnar, sem greinir frá því að Alitalia verði mun minna
flugfélag eftir að ríkið tekur yfir rekstur þess að nýju.
Stefnt er að því að búið verði að endurskipuleggja rekstur félagsins með vorinu en í 3 ár hafa tilraunir til þess að finna
nýja eigendur ekki skilað árangri og hefur félagið verið rekið með tapi frá árinu 2002.
Ítalska ríkið hefur nokkrum sinnum komið félaginu til bjargar með fjárveitingu og lánalínum en að lokum var ákveðið
að ríkisstjórn Ítalíu myndi taka yfir rekstur þess að nýju.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.