flugfréttir
Miami Air sækir um Chapter 11 greiðslustöðvun
Boeing 737-800 þota Miami Air International
Bandaríska flugfélagið Miami Air International hefur sótt um greiðslustöðvun undir reglugerðinni Chapter 11 en umsókn vegna þessa var send inn formlega til dómstóls í Flórída sl. þriðjudag.
Miami Air International, sem var stofnað árið 2001, er leiguflugvél sem hefur sex Boeing 737-800 þotur í
flota sínum en félagið hefur sinnt leiguflugi fyrir til að mynda skemmtiferðaskipafélög, íþróttalið
auk þess sem félagið hefur samning við bandaríska herinn um flutning á herliði.
Rekstur félagsins hefur orðið mjög illa fyrir barðinu á COVID-19 þar sem allir íþróttaviðburðir vestanhafs
hafa legið niðri en stór hluti starfseminnar var að fljúga með leikmenn á milli borga.
Miami Air International hefur höfuðstöðvar í Miami og starfa um 400 manns hjá félaginu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.