flugfréttir
Flugmenn samþykkja laun og kjör er varðar Project Sunrise
Tölvugerð mynd af Airbus A350-1000 í litum Qantas
Flugmenn hjá ástralska flugfélaginu Qantas hafa kosið með Sólarupprásar-verkefninu Project Sunrise sem er framtíðarstefna Qantas í að bjóða upp á beint flug frá Ástralíu til Evrópu og Norður-Ameríku.
Samningurinn þýðir að þeir flugmenn, sem fljúga langflug hjá félaginu, hafa samþykkt þau launakjör sem Qantas hefur boðið
þeim ef ákveðið verður að leggja inn pöntun í Airbus A350 þoturnar og hefja beint flug milli Ástralíu og Evrópu og Ameríku
kringum árið 2022 en um væri að ræða lengstu áætlunarflug í heimi í beinu flugi.
Qantas tilkynnti í gær að af þeim 1.400 flugmönnum sem tóku þátt í kjörinu þá voru um 85% þeirra sem kusu með
samningnum er varðar kjör og aðstæður fyrir Project Sunrise.
„Þessi kosning er gerð á mjög erfiðum tímum en það er nauðsynlegt að halda áfram að horfa fram á við“, segir Dick
Tobiano, yfirflugstjóri hjá Qantas.
Qantas ákvað í desember í fyrra að velja Airbus A350-1000 þotuna sem flugvélakost fyrir „Sólarupprásarverkefnið“ og hafnaði með því tilboði Boeing sem bauð félaginu Dreamliner-þotuna.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.