flugfréttir
Ein yngsta Airbus A320 þotan sem send hefur verið til niðurrifs
- 13 ára gömul þota úr flota Alaska Airlines fer í brotajárn
Airbus A320 þotan, sem TDA mun rífa í sundur á næstunni, var framleidd árið 2007
Hollenska fyrirtækið TDA, sem sérhæfir sig í flugvélapörtum og niðurrifi á flugvélum, segir að það hafi tekið að sér að rífa í brotajárn yngstu Airbus A320 þotu sem fyrirtækið hafi fengið í sínar hendur.
TDA keypti flugvélina úr flota Alaska Airlines en þotan var upphaflega afhent til Virgin America árið 2007 og er vélin því 13 ára gömul.
Alaska Airlines tók við A320 þotunum er félagið tók yfir rekstur Virgin America árið 2018 en félögin tvö voru þá sameinuð undir merkjum
Alaska Airlines.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem TDA tekur að sér að rífa niður tiltölulega nýja A320 þotu en árið 2016 keypti fyrirtækið
Airbus A320 þotu frá AirAsia sem var þá 12 ára gömul sem var þá yngsta flugvélin sem fyrirtækið hafði nokkurn tímann
fengið til niðurrifs.
Þotan sem fyrirtækið fékk á dögunum frá Alaska Airlines verður rifin niður í Pinal Lark í Marana í Arizona í Bandaríkjunum
en varahlutirnir verða sendir í dreifikerfi TDA og tilbúnir til sendingar víðsvegar um heim.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.