flugfréttir

Boeing fær pöntun í 18 þotur af gerðinni P-8 Poseidon

- Pöntun að andvirði 213 milljarða króna

31. mars 2020

|

Frétt skrifuð kl. 17:33

Boeing P-8 Poseidon herflugvélin kom fyrst á markað árið 2013

Í skugga þeirra erfiðleika sem flugheimurinn stendur frammi fyrir vegna COVID-19 og á tímum þar sem fáar pantanir berast til flugvélaframleiðenda þá hefur Boeing fengið nýja pöntun í á annan tug herflugvéla af gerðinni Boeing P-8 Poseidon.

Pöntunin kemur frá bandaríska sjóhernum sem hefur staðfest pöntun í átján Boeing P-8 Poseidon flugvélar fyrir bandaríska herinn, sjóher Suður-Kóreu og fyrir nýsjálenska flugherinn.

Pöntunin er metin á 1.5 milljarð bandaríkjadali sem samsvarar 213 milljörðum króna en suðurkóreski sjóherinn mun fá sex þotur, fjórar þotur fara til Nýja-Sjálands og bandaríski sjóherinn tekur átta flugvélar.

Boeing P-8 Poseidon er herútgáfa af Boeing 737-800 þotunni  og er hún sérstaklega hönnuð til þess að koma auga á kafbáta með öflugum radarbúnaði en hún getur einnig borið tundurskeyti, sprengjur, gagnflaugar og að innan er hún hlaðin sérhæfðum rafeindatækjum, ratsjám, skynjurum og öðrum hernaðargögnum.

Áhöfn að stöfum inni í Boeing P-8 Poseidon herflugvélinni

Bandaríski herinn er langstærsti viðskiptavinurinn er kemur að P-8 Poseidon þotunni og hefur herinn pantað alls 117 slíkar þotur sem er ætlað að leysa af hólmi Lockheed P-3 Orion herflugvélarnar.

Önnur lönd sem hafa pantað P-8 Poseidon eru Bretland, Ástralía, Indland og þá á Noregur von á fimm slíkum þotum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga