flugfréttir
Þotu snúið við eftir að hlaðmenn greindust með COVID-19
Farþegaþotur Qantas á flugvellinum í borginni Adelaide
Farþegaþotu frá Qantas var snúið við í gær eftir að í ljós kom að niðurstöður úr skimun leiddi í ljós að sex hlaðmenn á flugvellinum í Sydney greindust með kórónaveiruna.
Þegar niðurstöðurnar láu fyrir varðandi starfsmennina sex ákvað flugfélagið ástralska
að aflýsa sex flugferðum og þar á meðal flugi sem var þegar lagt af stað sem
var Boeing 737-800 þota á leið til Adelaide.
Þotan var komin 1 klukkustund og 20 mínútur áleiðis til Adelaide og átti aðeins 20
mínútur eftir þegar áhöfn vélarinnar var gert að snúa við aftur til Sydney.
Bæði Qantas og flugfélagið Jetstar hafa stöðvað allt millilandaflug vegna COVID-19
en félögin hafa þó ennþá haldið uppi einnverjum innanlandsflugsamgöngum auk
þess sem Qantas flýgur fraktflug áfram í millilandaflugi.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.