flugfréttir
Sagt að Condor verði ríkisvætt
- Yfirtaka LOT Polish Airlines á Condor fóru út um þúfur vegna COVID-19
Farþegaþotur Condor á flugvellinum í Dusseldorf
Óstaðfestar heimildir herma að ríkisstjórn Þýskalands ætli sér að ríkisvæða flugfélagið Condor og taka yfir rekstur þess eftir að viðræður félagsins við LOT Polish Airlines fóru út um þúfur en pólska flugfélagið hugðist taka yfir rekstri Condor.
Greint var frá því í janúar að LOT Polish Airlines ætlaði sér að taka yfir Condor með
því að kaupa félagið fyrir 300 milljónir evra sem samsvarar 46 milljörðum króna.
Heimildarmaður, sem þekkir til aðstæðna, segir að svo virðist sem að LOT eigi í erfiðleikum
með að fjármagna kaupin á Condor og þá sérstaklega í ljósi þeirra aðstæðna sem eru
komnar upp í fluginu vegna COVID-19.
Fram kemur að von sá á yfirlýsingu frá ríkisstjórn Þýskalands á allra næstu dögum og þessvegna
í þessari viku varðandi yfirtökuna en Condor hefur ekki viljað tjá sig um málið og segir
að félagið eigi í viðræðum við ýmsa aðila og ekkert hafi enn verið ákveðið.
Sagt er að ef þýska ríkið tekur yfir rekstur Condor þá væri aðeins um tímabundna ríkisvæðingu
að ræða.
Condor var hluti af Thomas Cook samsteypunni og var Condor-hluta félagsins bjargað
með 59 milljarða króna láni eftir að Thomas Cook varð gjaldþrota í september í fyrra.
Í síðustu viku sótti Condor um ríkisaðstoð upp á 31 milljarð króna vegna útbreiðslu
kórónaveirunnar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.