flugfréttir

Loganair breytir tveimur Twin Otterum í sjúkraflugvélar

2. apríl 2020

|

Frétt skrifuð kl. 12:56

Loganair vinnur einnig að því að breyta einni Saab 340 flugvél fyrir sjúkraflug

Skoska flugfélagið Loganair mun frá og með morgundeginum byrja að fljúga sjúkraflug í fyrsta sinn í þeim tilgangi að flytja farþega undir læknishendur sem hafa smitast af kórónaveirunni.

Vegna þessa hefur Loganair látið breyta tveimur DHC-6 Twin Otter flugvélum í sjúkraflugvélar með því að fjarlægja sætin úr vélunum og koma upp aðstöðu fyrir sjúkling og sjúkraliða í samráði við skosku bráðamóttökuna.

Að öllu jöfnu geta Twin Otter flugvélar í sjúkraflugi flogið með tvo sjúklinga en vegna COVID-19 og eðli sjúkdómsins mun félagið aðeins fljúga með einn sjúkling í einu í stað tveggja.

Svona lítur DHC-6 Twin Otter flugvélin út eftir breytingarnar

Þá er Loganair einnig að vinna að því að innrétta eina af Saab 340 flugvélunum fyrir flutning á sjúklingum og verður sú vél komin í gagnið eftir helgi og mun hún byrja að fljúga sjúkraflug í næstu viku.

Saab 340 flugvélin mun fljúga með tvo COVID-19 sjúklinga og mun sú flugvél verða notið í að fljúga lengri flugleiðir innan Skotlands.

„Við munum styðja við bakið á skosku bráðaþjónustunni og NHS sjúkrahúsunum og vera til staðar fyrir fólk sem býr á skosku eyjunum sem stólar algjörlega á okkur er kemur að samgöngum svo að þegar mikið liggur við þá verður við til staðar þegar þörf er á“, segir í tilkynningu frá félaginu.

Prófanir hafa farið fram hjá Loganair með að flytja COVID-19 sjúklinga







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga