flugfréttir
Emirates mun hefja takmarkað flug að nýju eftir helgi
Flugvélar Emirates á flugvellinum í Dubai
Emirates ætlar að hefja áætlunarflug að nýju í farþegaflugi á mánudaginn eftir helgi, þann 6. apríl, en félagið mun byrja mjög smátt og verður til að byrja með aðeins flogið til einstakra áfangastaða.
Emirates stöðvaði allt flug þann 25. mars sl. vegna COVID-19 en félagið hefur fengið leyfi frá yfirvöldum í Dubai til þess að hefja flug að nýju í takmörkuðu mæli eftir að tveggja
vikna lokun flugvallarins í Dubai er á enda.
Til að byrja með verður aðeins flogið með farþega frá furstadæmunum og verður því ekki flogið með
farþega til Dubai fyrst um sinn og má gera ráð fyrir að flugvélar Emirates muni því koma tómar til baka.
Frekara mat mun fara fram af hálfu stjórnvalda áður en frekari höft verða afnumin af ferðum til og frá Sameinuðu
arabísku furstadæmunum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.