flugfréttir
Mikil ásókn meðal ungmenna í flugnámskeið á Netinu
- 75.000 hafa sótt appið Learn To Fly á vegum Young Eagles verkefnisins
Young Eagles verkefnið hófst fyrst árið 1992
Mikil ásókn hefur verð meðal ungs fólks vestanhafs í kynningarnámskeið á Netinu sem kallast „Learn To Fly“ sem miðar að því að hvetja ungt fólk til þess að læra að fljúga.
Samtökin Experimental Aircraft Association (EAA) tilkynntu nýlega að í dag hafi um 75.000 notendur
tekið þátt í Young Eagles verkefninu og sótt Learn To Fly námsefnið frá vefsíðunni
Sportys.
Learn To Flyer var hannað sem bóklegt undirbúningsnámskeið fyrir einkaflugmannsnám auk þess
sem það inniheldur þjálfunarprógröm og stendur það öllum þátttakendum í Young Eagles frítt til boða.
EAA segir að samtökin hafi tekið eftir mikilli aukningu sl. daga og vikur þar sem fjöldi
ungs fólks ver meiri tíma innandyra vegna COVID-19 heimsfaraldursins þar sem skólar
eru lokaðir.
Alls hafa yfir 75.000 börn og unglingar sótt kennsluefnið Learn To Fly í tengslum við Young Eagles verkefnið á vegum EAA
„Það er nauðsynlegt að tryggja áhuga ungs fólks á fluginu og að þau fái tækifæri á að
fylgja því eftir í kjölfar Young Eagles verkefnisins“, segir Michhael Wolf, framkvæmdarstjóri
Sporty´s.
Young Eagles verkefnið býður börnum og unglingum upp á frítt kynnisflug fyrir þá
sem eru á aldrinum 8 til 17 ára og er þetta fyrsti stökkpallurinn að fluginu áður en
þau náð þeim aldri að geta formlega hafið einkaflugmannsnám (PPL).
Sjálfboðaliðar á vegum EAA hafa flogið með yfir 2.2 milljónir ungmenna í tengslum
við Young Eagles verkefnið frá því var hrint úr vör fyrst árið 1992.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.