flugfréttir
Ríkisaðstoð vegna SAS ekki nóg ef ástandið dregst á langinn
- Þyrftu enn meira fé til þess að tryggja framtíð SAS í gegnum COVID-19
Flugvélar SAS
SAS segir að það fé sem flugfélagið hefur þegar fengið vilyrði fyrir frá ríkisstjórnum Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar muni ekki duga lengi ef heimsfaraldurinn vegna COVID-19 dregst á langinn og segir félagið að þörf sé á enn frekari aðstoð ef engin breyting verður á ástandinu.
SAS hefur þegar sagt upp tímabundið um 11.000 starfsmönnum en félagið ætlar einnig
að leggja niður endanlega 120 stöðugildi innan félagsins.
Félagið hefur aflýst öllum flugferðum næstum því í apríl og eru aðeins örfáar flugferðir
farnar innanlands í Noregi og í Svíþjóð en þó er meira um áætlunarflug í Noregi.
Sænska ríkið hefur ráðstafað fé upp á 21 milljarð króna vegna SAS sem mun einnig fá álíka
ríkisaðstoð frá Danmörku en bæði löndin eiga hlut í flugfélaginu. Þá á SAS einnig von á því að fá
lán upp á 84 milljarða króna frá norska ríkinu sem er hlut af aðgerðum norsku ríkisstjórnarinnar
til þess að bjarga fyrirtækjum í flugiðnaðinum í Noregi.
SAS varar hinsvegar við því að þetta gæti mögulega ekki verið nóg þegar upp er staðið. - „Við
erum þakklát fyrir þann styrk sem Danmörk, Svíþjóð og Noregur hafa veitt okkur með
fjárhagsaðstoð. Samt sem áður þá eru þessar upphæðir, sem búið er að ráðstafa fyrir félagið, ekki
nægar til að tryggja rekstur SAS ef núverandi ástand varir mikið lengur“, segir í tilkynningu frá
félaginu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.