flugfréttir

EasyJet frestar pöntun í 24 þotur hjá Airbus

10. apríl 2020

|

Frétt skrifuð kl. 12:51

Farþegaþotur easyJet á Tegel-flugvellinum í Berlín

EasyJet hefur komist að samkomulagi við Airbus um að slá á frest pöntun sem gerð var í 24 farþegaþotur sem til stóð að yrðu afhentar í ár og fram til ársins 2022.

Þessi ákvörðun var tekin vegna þrýstings frá Stelios Haji-loannou, stofnanda félagsins, sem hefur sl. daga hótað því að fara í mál við stjórn easyJet ef félagið myndi ekki draga úr framtíðaráformum sínum varðandi flotastefnu með því að hætta við eða fresta pöntunum sem félagið á inni hjá Airbus.

Stelios fór hinsvegar fram á að félagið myndi hætta við mun fleiri vélar og krafðist þess að hætt yrði við pöntun á 107 Airbus-þotum en í staðinn hefur félagið ákveðið að fresta afhendingum á 24 flugvélum.

Félagið segir í yfirlýsingu sinni að nákvæm dagsetning varðandi afheningar samkvæmt breytingunni sé að vænta síðar og verði gert í takt við eftirspurn á næstunni.

Þá ætlar easyJet einnig að breyta eða hætta við leigusamninga á 24 þotum og endurnýja þá samninga síðar yfir 16 mánaða tímabil til þess að fá frekari sveiganleika til að breyta flotastefnu sinni og aðlaga hana að nýjum tímum.

„Flugiðnaðurinn stendur frammi fyrir tímum sem hafa lítið fordæmi og það krefst þess að við verðum að taka til aðgerða sem lagar sig að því“, segir Johan Lundgren, framkvæmdarstjóri easyJet.

Þá stendur til að hafa hluthafafund þar sem meðal annars verða ræddar aðgerðir um að reka Andreas Bierwirth og Andrew Findlay, fjármálastjóra félagsins, úr stjórn félagsins að ósk Stelios Haji-loannou.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga