flugfréttir

Boeing gæti þurft að segja upp 10 prósent af starfsmönnum

10. apríl 2020

|

Frétt skrifuð kl. 13:36

Frá Boeing-verksmiðjunum í Everett í Washington

Boeing gerir ráð fyrir að segja upp allt að 16.000 manns sem samsvarar 10 prósent af vinnuafli í verksmiðjunum en flestar uppsagnir verða í framleiðslu á farþegaþotum.

Þessar aðgerðir eru gerðar vegna samdráttar í flugiðnaðinum vegna COVID-19 en eftirspurn eftir nýjum flugvélum hefur dvínað verulega og er flugvélaframleiðendur farnir að taka við afbókunum frá flugfélögum.

Boeing hafði lokað verksmiðjunum í Everett og í Renton eftir að einn starfsmaður lést af völdum COVID-19 en lokanirnar hafa einnig náð til verksmiðjunnar í North Charleston í Suður-Karólínu þar sem Dreamliner-þoturnar eru framleiddar.

Boeing hefur lýst því yfir að sennilega munu þurfa að segja upp tíunda hverjum starfsmanni en miðað við það að hjá Boeing starfa í dag 161.000 manns þá gæti það þýtt að um 16.000 starfsmönnum verði sagt upp.

Boeing hefur hinsvegar tekið fram að þetta sé enn til skoðunar og hafi ekkert enn verið ákveðið og sé verið að leggja mat á það hversu viðtækar uppsagnirnar verða.

„Eitt er alveg á hreinu sem er að það mun taka tíma fyrir flugiðnaðinn að ná sér á strik“, segir Dave Calhoun, framkvæmdarstjóri Boeing í bréfi sínu til starfsmanna í síðustu viku.

Boeing hefur slegið öllum nýjum starfsmannaráðningum á frest og stöðvað allar yfirvinnugreiðslur í þeim tilgangi að spara rekstarfé.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga