flugfréttir
Ríkið tryggir flugsamgöngur til Egilsstaða og Ísafjarðar
- Flug til þessara áfangastaða hefði verið fellt niður annars vegna COVID-19
De Havilland Dash 8 Q200 flugvél Air Iceland Connect í flugtaki á braut 01 á Reykjavíkurflugvelli
Ríkisstjórnin hefur náð samningum við Air Iceland Connect til að tryggja lágmarksflugsamgöngur til Egilsstaða og Ísafjarðar vegna heimsfaraldursins.
Ríkið mun leggja til 13 milljónir króna til þess að tryggja að farnar verði að minnsta kostið þrjár til sex flugferðir
í viku milli Reykjavíkur og Egilsstaða og að lágmarki þrjár flugferðir til Ísafjarðar.
Farþegum í innanlandsflugi hefur fækkað töluvert vegna COVID-19 og stefndi að öðru leyti í að Air Iceland
Connect hefði lagt af allt flug til Egilsstaða og Ísafjarðar tímabundið án aðkomu ríkisins.
„Innanlandsflug gegnir afar mikilvægu hlutverki fyrir íbúa landsbyggðarinnar og fá svæði verða fyrir meiri skaða af niðurfellingu flugs en norðanverðir Vestfirðir og Austurland. Á þessum svæðum er ekki val um almenningssamgöngur til og frá höfuðborgarsvæðinu,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.
Þá kemur fram að innanlandsflug hafi mjög mikilvægu hlutverki að gegna er varðar dreifingu á lyfjum og flutning
á sýnum vegna útbreiðslu kórónaveirunnar.
Samningurinn tók í gildí í gær, 14. apríl, og gildir hann til 5. maí en fram kemur að mögulegar tekjur
Air Iceland Connect af flugferðunum gæti lækkað greiðslur ríkisins.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.