flugfréttir
Emirates tekur COVID-19 sýni á farþegum fyrir brottför
- Niðurstöður fengust á innan við 10 mínútum á öllum farþegum
Allir farþegar sem voru á leið frá Dubai til Túnisborgar í dag með Emirates voru skimaðir fyrir COVID-19
Emirates hefur brugðið á það ráð að taka blóðsýni af farþegum áður en þeir ganga um borð í flugvélar félagsins til þess að ganga úr skugga um að farþegar séu smitaðir af kórónaveirunni fyrir brottför.
Félagið framkvæmdi fyrstu blóðsýnisprufurnar fyrir brottför í dag frá Dubai til Túnis en Emirates
segist vera fyrsta flugfélagð sem skimar farþega fyrir COVID-19 með sýnum sem skila niðurstöðum
á nokkrum mínútum.
Emirates segir að skyndiblóðsýni hafi verið tekin á farþegum í Terminal 3 flugstöðinni sem voru á leið
til Túnis í samráði við læknayfirvöld í Dubai og fengust niðustöður á innan við 10 mínútum.
Með þessu getur Emirates flogið áfram til áfangastaða í þeim ríkjum þar sem ríkisstjórn viðkomandi lands fer fram á að farþegar verði að framvísa COVID-19 vottorði.
Flugfélagið segir að prófanirnar hafi gengið mjög hratt fyrir sig en Emirates tekur ekki fram hvort að einhverjir
af farþegunum sem voru á leið til Túnis hafi greinst jákvæðir gagnvart COVID-19.
Farþegar þurfu í mesta lagi að bíða í 10 mínútur eftir niðurstöðum
Emirates segir að verið sé að undirbúa sýnatökur fyrir önnur áætlunarflug og sé verið að vinna að því að stækka sýnatökuaðstöðuna á flugvellinum í Dubai svo hægt verði að flýta ferlinu og taka enn fleiri sýni.
Meðal aðgerða sem Emirates hefur gripið til er kemur að farþegaflugi vegna COVID-19 er að fara
fram á að allir farþegar séu með grímu fyrir andliti og þá er allur handfarangur bannaður um borð en þó
eru gerðar undantekningar með fartölvur og vörur sem tilheyra þeim sem eru að ferðast með ungabörn.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.