flugfréttir
Myndband: Nauðlending á hraðbraut í Kanada
Atvikið átti sér stað um klukkan 14:30 að íslenskum tíma nálægt Quebec-borg
Flugmaður lítillar einkaflugvélar af gerðinni Piper PA-28 Cherokee neyddist til þess að lenda á hraðbraut í Kanada í morgun eftir að vandræði kom upp með gang í mótor vélarinnar.
Ökumaður náði meðfylgjandi myndbandi af nauðlendingunni er hann ók eftir hraðbrautinni
sem sýnir hvernig flugmanninum tókst að sneiða hjá skiltum og brúm og fann stað til þess á að koma
sér niður á miðjuakgreinina á hraðbrautinni innan um bílaumferð og tókst lendingin mjög vel.
Atvikið átti sér stað í nágrenni Quebec-borgar rétt eftir klukkan 14:00 að íslenskum tíma í dag en fram
kemur að flugmaður vélarinnar hafi hringt í slökkviliðið í Quebec-borg til þess að fá leyfi til að lenda
á hraðbrautinni skammt frá Jean-Lesage flugvellinum.
Loka þurfti fyrir umferðina í eina og hálfa klukkustund eftir lendinguna á meðan flugvélin var flutt af
hraðbrautinni en flugmanninn sakaði ekki.
Myndband:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.