flugfréttir

Framleiðsla á farþegaþotum hefst á ný eftir helgi

- 27.000 starfsmenn snúa eftur til starfa á Seattle-svæðinu

17. apríl 2020

|

Frétt skrifuð kl. 07:37

Um 27.000 starfsmenn munu snúa aftur til starfa hjá Boeing eftir helgi

Framleiðsla á farþegaþotum hjá Boeing á Seattle-svæðinu mun hefjast að nýju í næstu viku en Boeing stöðvaði framleiðsluna tímabundið vegna COVID-19 heimsfaraldursins þann 25. mars sl. eftir að neyðarástandi var lýst yfir í Washington-ríki vegna heimsfaraldursins.

Um 27.000 starfsmenn munu snúa aftur til starfa á Puget-svæðinu sem nær yfir Everett, Renton og Boeing Field og hefur framleiðandinn gert sérstakar varúðarráðstafanir vegna COVID-19 er kemur að hreinlæti í verksmiðjunum.

Framleiðsla á Boeing 747-8, Boeing 767, Dreamliner-þotunum og Boeing 777 mun hefjast að nýju auk þess sem haldið verður áfram að undirbúa Boeing 737 MAX fyrir endurkomu.

Framleiðslan hjá Boeing mun fara í gang að nýju mánudaginn 20. apríl næstkomandi en verksmiðjurnar í North Charleston í Suður-Karólínu, þar sem Boeing 787 er einnig framleidd, verða hinsvegar áfram lokaðar.

Búið verður að setja merkingar á gólfið í verksmiðjunum til að viðhalda samfélagslegum aðskilnaði áður en starfsfólk mættir aftur til starfa og þá verður öllum starfsmönnum gert að nota andlítsgrímur og hlífar og þá ber öllum að tilkynna um veikindi og halda sig heima í stað þess að mæta til starfa ef svo ber undir.

Þá verður skyndiheilbrigðisskoðun framkvæmd á öllum starfsmönnum í hvert skipti sem þeir mæta til starfa auk þess sem allir verða mældir með hitamæli við komuna í verksmiðjurnar.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga