flugfréttir
Fjögur dótturfélög Norwegian gjaldþrota
- Yfir 1.500 flugmenn hjá Norwegian missa vinnuna
Hluti af flugflota Norwegian kyrrsettur á Gardermoen-flugvellinum í Osló vegna COVID-19
Norwegian hefur lýst því yfir að fjögur dótturfyrirtæki lágfargjaldafélagsins norska urðu gjaldþrota í dag vegna þeirra áhrifa sem útbreiðsla kórónaveirunnar hefur haft á reksturinn.
Dótturfélögin sem um ræðir halda utan um áhafnir Norwegian og hafa þau verið starfrækt í Danmörku og í Svíþjóð en gjaldþrotið hefur áhrif á yfir 4.600 flugmenn og
áhafnameðlimi sem hafa því nú misst vinnuna.
Áhafnir Norwegian í Skandinavíu starfa hjá mismunandi dótturfélögum Norwegian en í yfirlýsingu frá félaginu
kemur fram að það hafi ekkert annað verið í stöðunni en að lýsa yfir gjaldþroti hjá dótturfélögunum í Danmörku
og Svíþjóð.
Alls eru 1.571 flugmaður hjá Norwegian sem missir starfið við gjaldþrot þessara fjögurra flugfélaga
auk þess sem 3.134 flugfreyjur og flugþjónar verða atvinnulaus.
„Við höfum gert allt til þess að reyna að koma í veg fyrir þessa stöðu og þessi ákvörðun var tekin á allra síðustu
stundu. Við höfum einnig beðið um opinbera aðstoð frá ríkisstjórnum Svíþjóðar og Danmerkur en án árangurs“, segir
Jacob Schram, framkvæmdarstjóri Norwegian.
Þá kemur einnig fram að verið sé að meta stöðuna varðandi það hvort nauðsynlegt sé að loka bækistöðvum
Norwegian á Gatwick-flugvellinum í London og bækistöðvum á Spáni.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.