flugfréttir
Stofnandi easyJet hótar að láta reka framkvæmdarstjórann
- Enginn grundvöllur fyrir fleiri þotum á þessum tímum
Stelios Haji-loannou, stofnandi easyJet
Stelios Haji-loannou, stofnandi easyJet, hótar því að reka Johan Lundgren, framkvæmdarstjóra félagsins, þar sem hann hefur ekki orðið við ósk stofnandans um að hætta algjörlega við pöntun sem félagið á inni hjá Airbus í nýjar Airbus-þotur.
Stelios segir að hann hafi ítrekað beðið stjórnendur easyJet um að hætta við pöntun félagsins hjá Airbus
að andvirði 820 milljarða króna og segir hann að pöntunin gæti gert út af við félagið á þessum erfiðu tímum.
„Ég mun fara fram á að framkvæmdarstjórinn auk forstjórans, John Barton, auk tveggja annarra stjórnarformanna, verði
reknir úr stjórn félagsins“, segir Stelios í yfirlýsingu sem hann sendi til fjárfesta og hluthafa í easyGroup
Holdings.
Allur flugfloti easyJet hefur verið kyrrsettur vegna COVID-19 frá því um miðjan mars
Hann sakar Lundgren um að hafa samþykkt greiðslu til Airbus upp á 278 milljarða króna sem innáborgun
fyrir þotunum á sama tíma og easyJet er að reka „bílastæði fyrir flugvélar“. Þá grunar Stelios einnig
að greiðslan sé hluti af mútugreiðslum til Airbus og segir hann að Barton neiti að rannsaka hvort að svo
geti verið.
„Ef mér tekst að reka þessa fjóra einstaklinga úr stjórn félagsins þá vænti ég þess að hinir sjö stjórnarmeðlimirnir
muni gera Peter Bellew, rekstarstjóra félagsins, að framkvæmdarstjóra yfir þessu „flugvélageymslufyrirtæki“
sem þetta er orðið og þá mun hann senda beiðni til Airbus um að hætta við pöntunina sem gerð var.
Stelios segir engan grundvöll fyrir því að panta fleiri þotur þar sem easyJet mun eiga erfitt með
að hafa allar þær þotur sem eru nú þegar í rekstri og telur hann að vélarnar í flotanum muni fljúga hálftómar
þegar farþegaflug hefst að nýju eftir COVID-19.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.