flugfréttir

Fækka Boeing 767 um helming og hætta með Airbus A319

- Austrian Airlines sér ekki fram á að eftirspurnin lagist fyrr en árið 2023

22. apríl 2020

|

Frétt skrifuð kl. 15:15

Boeing 767 þota Austrian Airlines

Austrian Airlines mun fækka Boeing 767 breiðþotunum í flota félagsins um helming og taka allar Airbus A319 þoturnar úr umferð.

Þetta er meðal þeirra aðgerða sem félagið hefur kynnt til þess að aðlaga sig að breyttu rekstarumhverfi þegar flugrekstur hefst á ný eftir að heimsfaraldrinum lýkur.

Framkvæmdastjóri Austrian Airines gerir ekki ráð fyrir að farþegaflug verði aftur með sama sniði fyrr en árið 2023 og í fyrsta lagi þá er séð fram á að eftirspurnin eftir flugi verði aftur sú sama og hún var fyrir COVID-19.

Austrian Airlines er eina flugfélagið innan Lufthansa Group sem hefur Boeing 767 breiðþotur og hefur félagið sex slíkar í rekstri en til stendur að fækka þeim niður í þrjár sem eru þær elstu í flotanum sem hafa meðalaldur upp á 27 til 28 ár.

Sjö Airbus A319 þotur munu fara úr flotanum og einnig 18 skrúfuþotur af gerðinni de Havilland Dash 8 Q400. Með þessum niðurskurði munu umsvif Austrian Airlines dragast saman um 20 prósent.

Austrian Airlines spáir því að eftirspurnin verði allt frá 25 til 50% í ár af því sem upphaflega var spáð fyrir árið 2020 og er talið að 75 prósent af eftirspurninni verði komin til baka árið 2021 og von er á að flugáætlunin verði komin öll til baka fyrir lok ársins 2023.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga