flugfréttir
1.2 milljörðum færri farþegar í sumar vegna COVID-19
- Tekjumissir upp á 37.178.000.000.000 krónur
ICAO gerir ráð fyrir að það muni taka lengri tíma fyrir flugiðnaðinn að ná sér samanborið við SARS-veiruna árið 2003
Alþjóðaflugmálastofnunin (ICAO) spáir því að flugfarþegar verði 1.2 milljörðum færri í sumar fram í september miðað við upphaflega spá sem gerð var fyrir árið 2020 vegna COVID-19.
Þá gerir nýuppfærð spá ráð fyrir því að þær tekjur sem flugfélögin fara á mis við vegna kórónuveirufaraldursins
nemi allt að 37 þúsund milljörðum króna á fyrstu níu mánuðum ársins og að millilandaflug eigi eftir að
dragast saman um 70 prósent.
Mestu áhrifin vegna faraldursins gætir í Evrópu og í Asíu auk Kyrrahafssvæðisins. Þá kemur fram að
fraktflug mun dragast saman um 19% en á móti kemur aukning í fraktflugi með sjúkrabirgðir sem er stór
hluti af því áætlunarflugi sem fram fer í dag.
ICAO setur upp tvær mögulegar leiðir sem gætu átt sér stað er kemur að endurkomu farþegaflugs í heiminum
þegar faraldrinum lýkur og er annars vegar um að ræða V-laga bataferli sem mun byrja í lok næsta mánaðar
og annarsvegar U-laga bataferli sem mun hefjast fyrir lok sumarsins eða jafnvel síðar.
Þess má geta að bataferlið í flugheiminum í kjölfar SARS-veirunnar árið 2003 var V-laga bataferli sem tók
6 mánuði en ICAO tekur fram að fyrstu vísbendingar vegna áhrifa af COVID-19 benda til þess að svo verði
ekki og gæti það því tekið lengri tíma fyrir flugiðnaðinn að ná sér í þessu tilfelli.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.