flugfréttir
Spá því að það gæti tekið 4 ár að ná sama farþegafjölda
- Telja að sami farþegafjöldi og var fyrir COVID-19 nái sama stigi árið 2024
Gatwick-flugvöllurinn í London
Stjórn Gatwick-flugvallarins spáir því að það gæti tekið allt að 4 ár fyrir flugumferðina um völlinn að ná sömu hæðum og hún var áður en COVID-19 heimsfaraldurinn skall á.
Í nýlegri ársskýrslu sem Gatwick-flugvöllurinn birti á dögunum kemur fram að þær aðstæður sem eru í dag
eigi sér ekkert fordæmi og hafi gríðarlegur samdráttur átt sér stað í farþegafjölda vegna
áhrifa frá útbreiðslu kórónuveirunnar og verði því gripið til viðeigandi aðgerða.
Meðal breytinga sem gerðar verða eru að starfsemi flugvallarins og umferð farþega um flugvölinn
mun aðeins eiga sér stað í syðri flugstöðvarbyggingunnni (South Terminal) um óákveðinn tíma
og þá verður opnunartími flugvallarins takmarkaður tímabundið við tímabilið frá klukkan 14:00 til 22:00 alla daga.
Fram kemur að ástandið verði metið reglulega og ákveðið síðar hvenær hægt verður að aflétta
takmörkunum en eins og staðan er í dag hefur 90% af starfsfólkinu á Gatwick-flugvelli verið sagt upp.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.