flugfréttir
Segir „heimskulegt“ að útiloka miðjusætin
- Michael O´Leary segir að Ryanair muni ekki fara eftir þessari hugmynd
Michael O´Leary, framkvæmdarstjóri Ryanair
Michael O´Leary, framkvæmdarstjóri írska lágfargjaldafélagsins Ryanair, gagnrýnir harðlega hugmyndir um að útiloka notkun á miðjusætinu um borð hjá flugfélögunum vegna COVID-19 og kallar slíkar aðgerðir „hálfvitagang“.
O´Leary segir að með því að útiloka miðjusætið munu flugfélög fara á mis við 33% af þeim fjölda farþega sem flestar flugvélar
geta tekið sem neyðir flugfélög til þess að hækka fargjöld töluvert til að ná fram hagnaði á hverri flugferð.
„Við getum ekki staðið í flugrekstri ef einungis er hægt að fljúga
í mesta lagi með 66 prósenta sætanýtingu. Tómt miðjusæti stuðlar ekki að neinni samfélagslegri öryggisfjarlægð og er því
um mjög heimskulega hugmynd að ræða sem þjónar engum tilgangi“, segir O´Leary sem tekur fram að slíkt myndi binda
endi á lágfargjaldarekstrarform félagsins.
O´Leary segir að annaðhvort skuli írsk stjórnvöld niðurgreiða þann kostnað sem Ryanair fer á mis við ef félagið á að fljúga
með tóm miðjusæti ellegar mun flugfélagið ekki fljúga neitt ef þetta verður raunin.
Alexandre de Juniac, formaður Alþjóðasamtaka flugfélaganna (IATA), tekur hinsvegar vel í þessa hugmynd og hafa flugfélög
á borð við Delta Air Lines og easyJet ákveðið að útiloka miðjusætið þegar farþegaflug hefst að nýju að loknum heimsfaraldrinum en
Delta Air LInes gerir ráð fyrir að miðjusætið verði útilokað fram til 30. júní næstkomandi.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.