flugfréttir

Rekstrarfé Norwegian verður á þrotum um miðjan maí

- Þurfa 41 milljarð króna til að bjarga rekstrinum í stuttan tíma

27. apríl 2020

|

Frétt skrifuð kl. 16:05

Boeing 737-800 þotur Norwegian

Stjórn norska flugfélagsins varar við því að ef félagið fær ekki aðstoð í formi fjármagns á næstunni verður rekstarfé félagsins á þrotum um miðjan næsta mánuð.

Ríkisstjórn Noregs hafði áður í miðjum COVID-19 heimsfaraldrinum lýst því yfir að stjórnvöld væru reiðubúin til að veita félaginu opinbera aðstoð upp á 3 milljarða norskra króna sem jafngildir 41 milljarði króna. Norwegian segir að það sé mjög krefjandi að félagið fái þá upphæð sem fyrst inn í reksturinn og það helst fyrir miðjan maí áður en allur aurinn verður uppurinn hjá flugfélaginu.

Norwegian hefur aðeins 7 farþegaþotur í umferð sem fljúga í dag mjög takmarkað áætlunarflug en fyrir heimsfaraldurinn var Norwegian með um 90 þotur í umferð sem tilheyra Norwegian Air Shuttle.

Norwegian gerir ekki ráð fyrir að leiðarkerfi félagsins verði orðið með eðlilegum hætti fyrr en árið 2022 og sér félagið ekki fram á að fljúga neitt langflug fyrr en í fyrsta lagi í apríl árið 2021.

Þrátt fyrir þá þrjá milljarða norskra króna sem félagið getur fengið frá norskum stjórnvöldum þá er rekstur Norwegian enn í mikilli hættu þar sem að skuldir félagsins eru mjög miklar en félagið stefnir á að draga úr skuldbindingum sínum um 73 milljarða króna og lækka mánaðarlegan kostnað vegna leigu á flugvélum um 618 milljónir króna.

Norwegian hefur gert áform að endurreisn félagsins eftir kórónaveirufaraldurinn sem nefnist „New Norwegian“ sem miðar af því að einblína á áætlunarflug milli Norðurlandanna og ætlar félagið því ekki að fljúga um gjörvalla Evrópu strax að faraldrinum loknum líkt og félagið gerði áður.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga