flugfréttir
Framtíð Airbus nánast í húfi vegna COVID-19
- Brenna upp lausafé á hraða sem aldrei áður hefur sést
Verksmiðjur Airbus í Toulouse
Airbus segir að framtíð flugvélarisans evrópska gæti verið í húfi vegna þeirra áhrifa sem COVID-19 heimsfaraldurinn hefur haft á starfsemi fyrirtæksins en þetta kemur fram í skilaboðum frá Guillaume Faury, framkvæmdarstjóra Airbus, sem send voru til starfsmanna sl. föstudag.
Faury segir að Airbus sé að „brenna upp lausafé“ á hraða sem aldrei áður
hefur sést í skugga kórónuveirufaraldursins á meðan lítið fé er að koma í kassann á móti.
Í gær var tilkynnt um uppsögn
á 3.200 starfsmönnum við verksmiðjur Airbus í Wales í Bretlandi og þá er umfangsmikil launalækkun fyrirhuguð meðal 135.000
starfsmanna í enn frekari niðurskurðaraðgerðum sem framundan eru.
Von er á því að Airbus muni í þessari viku birta uppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung
ársins og er talið að þær tölur verði mjög dökkar vegna áhrifa af COVID-19.
Greg Waldron, flugfréttaritari hjá Flight Global, segir að áhrifin af kórónaveirunni
séu gríðarleg fyrir Airbus og allan flugiðnaðinn og má segja að öll takmörk
og allar áætlanir séu orðnar að engu.
„Útlitið fyrir Airbus hefur farið frá því að vera „mjög jákvætt“ yfir í það að
vera „mjög neikvætt“, segir Waldron sem telur að Airbus eigi eftir að þrauka
í gegnum faraldurinn en samt ekki án þess að til uppsagna komi.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.