flugfréttir

Um 2.000 manns sagt upp hjá Icelandair

- Undirbúa félagið fyrir óvissutímabil á meðan farþegaflug er í dvala

28. apríl 2020

|

Frétt skrifuð kl. 14:47

Boeing 757 þotur Icelandair á Keflavíkurflugvelli

Icelandair hefur tilkynnt um uppsögn á um 2.000 starfsmönnum félagsins sem er liður í hagræðingu vegna áhrifa af kórónaveirufaraldrinum.

Uppsagnirnar taka í gildi um mánaðarmótin núna í vikunni og ná til allra deilda innan félagsins en í tilkynningu frá Icelandair Group segir að áhrifin af COVID-19 séu að hafa alvarleg áhrif á rekstur Icelandair.

Vegna þessa sé nauðsynlegt að grípa til aðgerða til þess að koma félagið í gegnum tímabil þar sem þjónusta og starfsemi verður í lágmarki og sé hluti af því að fækka starfsfólki þar sem launakostnaður sé einn stærsti útgjaldaliðurinn í flugrekstri.

Flestar uppsagnirnar ná til áhafna, flugvirkja auk starfsmanna í farþegaþjónustu og á skrifstofum félagsins. Þeir sem halda starfi sínu áfram munu sinna hlutastörfum og þeir sem verða í fullu starfi munu taka á sig lægri laun.

Um borð í Boeing 757 þotu Icelandair í áætlunarflugi frá Munchen til Keflavíkur sl. haust

„Það er mjög erfitt að þurfa að grípa til þessara aðgerða en það er samt sem áður nauðsynlegt. Við stöndum frammi fyrir gríðarlegri óvissu um óákveðna framtíð og erum við að undirbúa rekstur félagsins fyrir enn frekara óvissutímabil þar sem starfsemin verður mjög takmörkuð“, segir Bogi Nils Bogason, forstjóri og framkvæmdarstjóri Icelandair Group.

Bogi bætir því við að vonast sé til þess að félagið nái sér fljótt aftur á strik um leið og flugmarkaðurinn tekur við sér að nýju og þá vonandi verður hægt að endurráða aftur þá starfsmenn sem hafa misst vinnuna hjá félaginu.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga