flugfréttir
Boeing 737 MAX sennilega kyrrsettar fram á haust
- Vinnu við að finna lausn á tveimur hugbúnaðarvillum tefst fram á sumar
Boeing 737 MAX þotur United Airlines
Flest bendir til þess að Boeing 737 MAX þoturnar verði kyrrsettar áfram fram í ágúst í sumar og jafnvel fram á haust þar sem Boeing er enn í balsi með að finna lausn á tveimur mismunandi vandamálum í hugbúnaði í stjórnkerfum vélarinnar.
Samkvæmt heimildarmönnum þá hafði Boeing séð fram á að geta fengið flughæfnisvottun
á ný fyrir Boeing 737 MAX fyrir sumarið ein eins og staðan er núna mun það sennilega frestast fram á haust.
Southwest Airlines hefur meðal annars uppfært flugáætlun sína er kemur að notkun á flugflota og gerir
félagið ekki ráð fyrir að nota Boeing 737 MAX fyrr en í fyrsta lagi þann 30. október í haust.
Boeing tilkynnti í seinustu viku að flugprófunum hefur verið frestað sem áttu að fara fram á næstunni
þar sem framleiðandinn er í raun og veru að glíma við tvær hugbúnaðarvillur sem þarf að leysa.
Stærsta vandamálið sem hefur verið í ólagi snertir hið svokallaða MCAS-kerfi sem á að aðstoða við
stöðugleika vélarinnar sem ræðst af stöðu á stilliblöðkum á hæðarstýri vélanna („stabilizer trim“) sem reyndist
nauðsynlegur aðstoðarbúnaður eftir að í ljós kom að staða hreyflanna, þar sem þeir festast á vængina, viðheldur
ekki sama stöðugleika og finna má á eldri Boeing 737 þotum.
Yfir 400 Boeing 737 MAX þotur bíða þess að verða afhentar til viðskiptavina
Boeing vinnur að vandamálinu í samvinnu við fyrirtækið Raytheon Technologies en ekki er vitað hversu langan
tíma sú vinna mun taka né sá tími sem á eftir að fara í prófanir og að fá vottun frá bandarískum
flugmálayfirvöldum (FAA).
Boeing 737 MAX vélarnar hafa verið í dag kyrrsettar í 410 daga eða rúmlega þrettán mánuði en þess má
geta að yfir 400 eintök af Boeing 737 MAX þotum bíða þess að vera afhentar sem hafa verið í geymslu víðsvegar í
Bandaríkjunum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.