flugfréttir
AirAsia endurskoðar pöntun í 480 þotur hjá Airbus
Flugfloti AirAsia
Malasíska lágfargjaldafélagið AirAsia segir að verið sé að endurskoða pantanir sem félagið á inni hjá Airbus í nýjar farþegaþotur en flugfélagið á von á 480 nýjum þotum á næstu árum.
AirAsia segir að félagið muni ekki taka á móti neinni nýrri þotu á þessu ári en AirAsia hefur 97 Airbus-þotur í flotanum og þá
hefur systurfélagið AirAsia X 21 þotu í sínum flota.
Til samans eiga flugfélögin von á 567 þotum sem félögin eiga eftir að fá afhentar
en AirAsia á von á að fá þotur af gerðinni Airbus A320neo og A321neo en AirAsia X á von á þotum af gerðinni A321XLR,
A330-900neo og Airbus A350.
AirAsia er eitt af stærstu lágfargjaldafélögunum í Asíu og hefur félagið vaxið sl. ár með miklum hraða og bætt við sig mörgum
þotum á hverju ári og stækkað flugflotann jafnt og þétt.
AirAsia lagði meðal annars inn stærstu pöntun sem Airbus hefur fengið í A330 breiðþotuna árið 2014 er félagið pantaði á einu bretti 55
eintök af Airbus A330neo.
Þá pantaði félagið tveimur árum síðar 100 eintök af Airbus A321neo og varð félagið með því stærsti viðskiptavinur Airbus sem hefur
pantað mjóar farþegaþotur beint frá framleiðandanum með einum gangi.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.