flugfréttir
Flugumferðaratvik er varðar Harrison Ford til rannsóknar
- Fór yfir braut þegar honum var sagt að bíða við brautina vegna umferðar
Atvikið átti sér stað á Hawthorne-flugvellinum í Kaliforníu sl. föstudag
Hollywood-leikarinn Harrison Ford kom sér í bobba nú á dögunum er hann lenti þyrlu sinni á flugvelli í Los Angeles en eftir lendingu gerði hann mistök sem eru nú komin inn á borð hjá bandarískum flugmálayfirvöldum (FAA) sem rannsaka málið.
Samkvæmt fréttum vestanhafs er um brautarátroðning að ræða en Harrison Ford hafði lent þyrlu sinni, sem er af gerðinni
Bell 407, á Hawthorne-flugvellinum í Kaliforníu sl. föstudag, þann 24. apríl.
Eftir lendingu bað flugumferðarstjóri Ford um að bíða við flugbrautina áður en hann myndi halda áfram þar sem önnur traffík var á brautinni en þess í stað fór hann yfir brautina.
Í upptöku af samskiptum milli leikarans og flugumferðarstjórans má heyra Harrison Ford biðjast afsökunar. Flugumferðarstjórinn
segir hástöfum við Harrison Ford: „Get across the runway now! - I told you to hold short. You need to listen up!“, segir flugumferðarstjórinn.
Ford biðst innilega afsökunar og segir að honum hafi fundist flugumferðarstjórinn vera að biðja hann um akkurat öfugan hlut sem
væri semsagt að fara yfir brautina. Starfsmaður hjá bandarískum flugmálayfirvöldum (FAA) segir að stofnunin sé að rannsaka atvikið.
Samtalið milli flugumferðarstjórans og Harrison Ford (á ensku):
Flugturn: „Hotel Uniform, hold short of runway 25. Traffic on the runway“
Harrison Ford: „Crossing 25…. Eigh Nine Hotel Uniform“
Flugturn: „Eight Nine Hotel Uniform. Get accross that runway now. I told you to hold short. You need to listen up“
Harrison Ford: „Excuse me, sir, I thought exactly the opposite. I am terribly sorry“
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.