flugfréttir

Flughátíðin Allt sem flýgur á áætlun í sumar

- Áætlaður fjöldi undir þeim mörkum sem sóttvarnarlæknir hefur sett

29. apríl 2020

|

Frétt skrifuð kl. 23:09

Frá flughátíðinni Allt sem flýgur á Hellu árið 2016

Þrátt fyrir að búið sé að blása af fjölmörgum samkomum og hátíðum í sumar þá bendir flest til þess að flughátíðin „Allt sem flýgur“ á Hellu sé á áætlun.

Um miðjan apríl gaf sóttvarnarlæknir út þau tilmæli þar sem fram kom að hátíðir í sumar takmarkist við 2.000 manns en í yfirlýsingu frá Flugmálafélagi Íslands kemur fram að fjöldi gesta á Allt sem flýgur hafi að öllu jöfnu verið undir því hámarki.

Talið er að í fyrra hafi verið um 300 til 400 manns sem mættu og gistu á svæðinu og þá voru fleiri gestir sem mættu á laugardeginum og var fjöldi gesta í fyrra því töluvert undir þeim mörkum sem sóttvarnarlæknir hefur sett.

Allt sem flýgur hefur verið ein af stærstu flugsamkomum sumarsins sem nær yfir heila helgi en hún hefur verið haldin frá árinu 2006 og stendur til að hátíðin í ár fari fram helgina 10. til 12. júlí.

Fram kemur að nauðsynlegt verði að uppfylla sérstök skilyrði er kemur að eftirliti varðandi sóttvarnir og verða nánari upplýsingar birtar þegar nær dregur. Fylgjast má með þróun mála og sjá nánari upplýsingar á Fésbókarsíðu Allt sem flýgur







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga