flugfréttir
Sagt að Boeing 757-Plus sé til skoðunar í stað Boeing 797
- Orðrómur um að Boeing 767-X komi einnig til greina í stað nýrrar hönnunar
Boeing hafði þegar tilkynnt í janúar að til stæði að setja áform um nýja framtíðarþotu á hilluna
Flestir flugvélaframleiðendur halda nú að sér höndum og reyna hvað þeir geta til þess að komast í gegnum þá undarlegu tíma sem nú ríkja um allan heim vegna COVID-19 heimsfaraldursins.
Það þýðir að þróun á nýjum flugvélum hefur í flestum tilfellum verið sett á hilluna og á það meðal
annars við hugmyndir Boeing sem hefur verið að undirbúa nýja farþegaþotu á markaðinn sem nefnd
hefur verið Boeing 797.
Boeing tilkynnti í janúar á þessi ári að framleiðandinn væri að endurskoða hugmyndir sínar
um nýja farþegaþotu til þess að einblína betur á þau vandamál sem hafa verið í gangi með
Boeing 737 MAX en fljótlega eftir þá tilkynningu byrjaði kórónuveirufaraldurinn.
Síðan þá hefur Boeing verið að skoða hvaða möguleikar væru í stöðinni er kemur að nýrri farþegaþotu
en hönnun á nýrri flugvél kostar gríðarlegar fjárhæðir og er ekki besti tíminn í dag að ráðst í slík verkefni.
Samkvæmt heimildarmönnum sem þekkja til þá er sagt að Boeing sé að skoða aðra kosti, sem væri
ódýrari og einfaldari leið, og meðal þess sem er til skoðunar er að gera endurbættari útgáfu af Boeing 767
þotunni og jafnvel Boeing 757 og myndu báðar vélarnar þá koma með nýrri vænghönnun og sparneytnari
hreyflum.
Framleiðslu á Boeing 757 var hætt árið 2004
Í október sl. haust kom fram að Boeing hefði þegar átt viðræður við hreyflaframleiðandann General Electric
um þróun á sparneytnari hreyflum fyrir Boeing 767 sem mögulega myndi heita til að byrja
með „Boeing 767-X“ en Boeing 767 er í dag eingöngu framleidd sem fraktflugvél en síðasta farþegaþotuútgáfan
af þotunni var afhent árið 2014.
Samkvæmt aðila, sem er kunnugur málinu, þá kemur fram að uppi séu hugmyndir um vél
sem nefnist „Boeing 757-PLUS“ og kæmi hún með fleiri sætum en Boeing 757 og hefði lengra flugdrægi.
Þrátt fyrir þá erfiðleika sem flugiðnaðurinn glímir við núna þá segir Boeing að framleiðandinn sé staðráðinn
í að halda áfram að horfa til framtíðar en ennþá er stór hluti viðskiptavina Boeing sem hafa Boeing 757
í flota sínum sem eru tilbúnir að fá arftaka að Boeing 757 þótt mörg flugfélög hafi leitað til Airbus
og pantað Airbus A321neo og A321XLR.
Ekki er vitað mikið meira um hversu alvarlega Boeing sé að íhuga endurbættari útgáfur af Boeing 767 og
Boeing 757 en framleiðandinn hefur þessa daganna verið að einblína að því að halda utan um reksturinn
á meðan COVID-19 er viðvarandi.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.