flugfréttir
Oshkosh 2020 frestað í ár
Frá Oshkosh-flughátíðinni
Skipuleggjendur flughátíðarinnar AirVenture Oshkosh hafa tilkynnt að ákveðið hefur verið að fresta flugsýningunni sem átti að fara fram í júlí í sumar.
Þetta er gert vegna þeirrar óvissu sem ríkir vegna COVID-19 heimsfaraldursins en Oshkosh 2020
átti að fara fram frá 20. til 26. júlí.
Oshkosh-flughátíðin er ein stærsta sinnar tegundar og langstærsta flugsýningin í Bandaríkjunum
en þess má geta að í fyrra mættu yfir 600.000 sýningargestir á hátíðina og voru yfir 10.000 flugvélar
sem lögðu leið sína á svæðið og voru til sýnis.
Skipuleggjendur hátíðarinnar segja að reynt var eftir mesta megni að finna leiðir til þess að komast
hjá því að fella niður hátíðina í ár en að lokum var talið að ekki væri grundvöllur til að halda hátíðina
vegna kórónuveirufaraldursins.
„Eins og staðan er núna þá verður útgöngubann enn í gildi fram til 26. maí og það kemur alveg í veg fyrir
að við náum að undirbúa sýningarsvæðið“, segir Jack J. Pelton, framvæmdarstjóri EAA, sem heldur utan um
hátíðina.
Pelton segir að þar sem engin dagsetning hefur verið gefin út fyrir Wisconsin varðandi afléttingar á
takmörkunum varðandi hópsamkomur skapi það mikla óvissu fyrir skipuleggjendur.
Fram kemur að allir þeir miðar sem hafa verið pantaðir fyrir hátíðina í ár muni sjálfkrafa gilda fyrir Oshkosh 2021
en fólk getur einnig farið fram á endurgreiðslu.
Þess má geta að SUN ’n FUN flughátíðinni, sem átti að fara fram í mars var í fyrstu, hefði verið frestað fram í apríl og fyrir þremur vikum var tilkynnt að hátíðinni hefði verið aflýst í ár.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.