flugfréttir

South African mun heyra sögunni til í stað nýs flugfélags

- Ríkisstjórn Suður-Afríku ætlar að stofna nýtt flugfélag í stað þess gamla

4. maí 2020

|

Frétt skrifuð kl. 13:52

Flugvélar South African Airways á flugvellinum í Jóhannesarborg

Ríkisstjórn Suður-Afríku hefur komist að samkomulagi um að stöðva starfsemi South African Airways og stofna þess í stað nýtt flugfélag fyrir landið en fram kemur að samkomulag þess efnis hafi náðst á milli verkalýðsfélaga og stjórnvalda í landinu.

Í yfirlýsingu kemur fram að hið nýja flugfélag verði bæði í eigu ríkisstjórnarinnar og einkaaðila og verður öllu starfsfólki South African Airways sagt upp störfum en því jafnframt boðið nýtt starf hjá nýja flugfélaginu.

„Gamla South African Airways er dautt. Það leikur enginn vafi á því en það sem kemur í staðinn gæti verið allt það sem gamla flugfélagið bjó yfir“, segir Pravin Gordhan, fyrirtækjaráðherra Suður-Afríku,

Markmiðið er að stofna nýtt flugfélag fyrir landið sem muni ná miklum árangri eftir tíma COVID-19 heimsfaraldursins en sögu South African Airways, sem hefur í mörg ár verið skuldum vafið og lengi á barmi gjaldþrots, má rekja aftur til ársins 1934.

South African sótti um gjaldþrotavernd í desember í fyrra og í janúar var ákveðið að setja á sölu helminginn af öllum breiðþotum félagsins til þess að auka lausafjármagn félagsins. Sumir vilja meina að það hefði mátt koma í veg fyrir endalok félagsins en fram kemur að svo virðist sem að heimsfaraldurinn hafi endanlega knésett rekstur félagsins.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga