flugfréttir
Ryanair flaug aðeins 20 flugferðir á dag í apríl
- 40.000 farþegar en voru 13.500.000 farþegar í apríl árið 2019
Boeing 737-800 þotur Ryanair
Ryanair hefur tilkynnt að félagið flaug aðeins 600 flugferðir í aprílmánuði sem leið sem jafngildir um 20 flugferðum á dag en í apríl í fyrra flaug félagið alls 75.501 flugferð.
Þetta endurspeglar þau áhrif sem heimsfaraldurinn hefur haft á Ryanair líkt og önnur flugfélög en þá
kemur fram að félagið hafi flogið með aðeins 40.000 farþega samanborið við 13,5 milljón farþega í apríl í fyrra.
Ryanair flaug að mestu björgunarflug þar sem verið var að ferja Breta og Íra aftur til síns heima
auk þess sem félagið hefur verið að fljúga flugferðir á vegum stjórnvalda.
Michael O´Leary, framkvæmdarstjóri Ryanair, segir að hann eigi ekki von á því að eftirspurn eftir flugsætum
eigi eftir að verða sú sama fyrr en í fyrsta lagi sumarið 2022.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.