flugfréttir

Annasamasti dagur í flugkennslu í margar vikur

- Fyrsta flugveðrið til flugkennslu eftir tilslakanir á sóttvarnarlögum

5. maí 2020

|

Frétt skrifuð kl. 16:05

Kennsluflug hefur legið niðri að mestu frá því COVID-19 faraldurinn kom upp hér á landi

Mikið hefur verið um kennsluflug í dag og hafa kennsluflugvélar bæði frá Flugakademíu Keilis og frá Geirfugli verið næstum stöðugt á lofti í dag bæði í verklegri einkaflugmannskennslu og í atvinnuflugkennslu.

Er þetta einn annasamasti kennsludagurinn eftir að tilslakanir voru gerðar á samkomubanni vegna COVID-19 þann 4. maí sl. en gærdagurinn viðraði hinsvegar ekki til flugs vegna hvassviðris á stórum hluta landsins.

Fyrir kennslu í einkaflugi eru nokkrir veðurfarslegir þættir sem þarf að uppfylla fyrir flugkennslu sem er lágmarks skýjahæð, skyggni og vindur, bæði á flugbraut og í lofti en í flugkennslu til atvinnuflugs er skýjafar ekki eins takmarkandi þáttur og þá sérstaklega ef um kennslu í blindflugi er að ræða en þar að auki eru slíkar vélar betur búnar fyrir ísingarskilyrði.

Í dag var hinsvegar allt önnur staða upp á teningnum og viðraði vel til flugs með góðri skýjahæð þrátt fyrir smá golu á Reykjavíkurflugvelli og á tímabili voru flestar flugvélar á Flightradar24.com kennsluvélar í verklegri flugkennslu í nágrenni Reykjavíkur.

„Það er greinilegt að margir hafa beðið iðandi í skinninu með að hafa komist í loftið. Við gerum okkar besta til að verða við því“, segir skólastjóri Geirfugls.

Kennsluflugvélar í nágrenni Reykjavíkur á Flightradar24.com klukkan 13:31 í dag

COVID-19 hefur bæði haft áhrif á verklega kennslu og bóklegt flugnám en til að mynda hefur bóklegum prófum í einkaflugnámi og atvinnuflugmannsnámi hjá flugmálayfirvöldum hérlendis tvisvar verið frestað í vor vegna þeirra áhrifa sem kórónaveirufaraldurinn hefur haft á samfélagið og má sömu sögu segja varðandi slík próf hjá flugmálayfirvöldum erlendis.

Þá er einnig að lifna yfir grasrótinni og var töluvert mikið um að einkaflugmenn viðruðu vélarnar sínar og sinna flugklúbba sl. sunnudag en margir einkaflugmenn nýta gjarnan helgarnar vel fyrir flugtúra og fer sífellt fjölgandi þeim flugvöllum og lendingarstöðum sem eru að verða færir eftir að hafa legið í vetrardvala.

Skemmtileg mynd sem tekin var er tvær flugvélar lögðu leið sína til Keflavíkurflugvallar þar sem bauðst tækifæri til myndatöku sem að öllu jöfnu stendur ekki til boða en flugumferð í Keflavík hefur verið mjög takmörkuð vegna faraldursins / Ljósmynd: Haraldur Diego







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga