flugfréttir

Segir að tími A380 sé á enda

- „Ekkert flugfélag er að fara fljúga risastórum fjögurra hreyfla þotum meira“

7. maí 2020

|

Frétt skrifuð kl. 14:44

Tim Clark, forstjóri Emirates, sem hefur 115 Airbus A380 risaþotur í flotanum

Tim Clark, forstjóri Emirates, segir að tími Airbus A380 sé liðinn þar sem risaþotan sé of stór fyrir þá nýju tíma sem nú taka við í flugiðnaðinum eftir tíma kórónaveirufaraldursins.

Ekkert flugfélag hefur eins margar Airbus A380 þotur í flotanum líkt og Emirates en félagið hefur 115 risaþotur sem flestallar eru nú í geymslu vegna COVID-19 faraldursins.

Tim Clark segir að Airbus A380 sé „dauð“ þar sem ekkert flugfélag sér hagkvæmni í því að notast við stórar, fjögurra hreyfla þotur á tímum sem að eftirspurn eftir farþegaflugi hefur lækkað niður í tölur sem aldrei áður hafa sést og flest flugfélög spá því að einhver tími mun líða þangað til að flugið sér aftur sama farþegafjölda og var fyrir heimsfaraldurinn.

Clark segir að A380 sé allt of stór fyrir flugfélög sem eru að hefja aftur flugrekstur með mun minna fé á milli handanna og mun færri farþega en sumum flugfélögum fannst risaþotan þegar of stór fyrir faraldurinn.

Airbus A380 risaþotur Emirates

„Við vitum að tími A380 er á enda. Hinsvegar mun Airbus A350 og Boeing 787 lifa góðu lífi áfram“, segir Tim Clark en Emirates á von á að fá fimmtíu Airbus A350-900 þotur afhentar og þrjátíu Boeing 787-9 þotur en mögulega mun félagið fresta afhendingum um einhvern tíma.

Clark segist sannfærður um að Emirates eigi eftir að ná sér á strik og koma enn sterkara til baka en hversu langan tíma það mun taka er ómögulegt að segja til um.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga