flugfréttir
Tók óvart upp hjólin í stað flapa
- Ruglaðist á sköftum fyrir flapa og hjólabúnað
Flugvélin sem um ræðir bar skráninguna N2167D
Einkaflugmaður í Bandaríkjunum ruglaðist á skafti fyrir flapa og hjólabúnað skömmu eftir lendingu með þeim afleiðingum að hjól vélarinnar drógust upp í miðju lendingarbruni.
Rannsóknarnefnd samgönguslysa í Bandaríkjunum (NTSB) hefur gefið út skýrslu varðandi
flugslysið sem átti sér stað þann 28. maí árið 2018 á flugvellinum í bænum Corona í Kaliforníu.
Flugvélin sem um ræðir var af gerðinni Beech D35 Bonanza og var vélin nýlent og enn að stöðva sig
af á flugbrautinni þegar flugmaðurinn ætlaði sér að draga inn flapa vélarinnar.
Flugmaðurinn ætlaði að teygja sig í skaftið fyrir flapana en óvart tók í skaptið fyrir hjólabúnaðinn sem er
uppdraganlegur á þessari flugvélategund.
Þrátt fyrir að sköftin fyrir flapa og lendingarbúnað séu sitthvoru megin við stýrið þá ruglaðist flugmaðurinn
samt sem áður en flugmaðurinn tók fram að hann hafði skömmu áður flogið annarri flugvélategund
sem var með flapaskaft hægra megin við stýrið en á D35 er skaptið fyrir hjólin hægra megin.
Flugmaðurinn var 31 árs er slysið átti sér stað og var hann þá með 238 flugtíma að baki og þar af með 29
tíma á Beech D35 Bonanza. Flugvélin varð fyrir töluverðum skemmtum og sérstaklega á vinstri væng.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.