flugfréttir

Sótt um gjaldþrotavernd fyrir Avianca

- Starfsemi Avianca í Perú mun leggjast af

11. maí 2020

|

Frétt skrifuð kl. 11:28

Flugvélar Avianca sem er annað stærsta flugfélag Suður-Ameríku

Kólumbíska flugfélagið Avianca Holdings hefur sótt um sameiginlega gjaldþrotameðferð fyrir dótturfélögin og þá hefur starfsemi Avianca í Perú verið stöðvuð.

Avianca er annað stærsta flugfélagið í Suður-Ameríku á eftir LATAM flugfélaginu en sótt var um gjaldþrotameðferðina í gær og er þetta í annað skiptið í 100 ára sögu Avianca sem sótt er um gjaldþrotameðferð.

Stjórn félagsins segir að með því að stöðva starfsemi þess hluta félagsins sem var starfræktur í Perú gæti félagið náð að einbeita sér að þeim mörkuðum sem skipta mestu máli þegar félagið byrjar að fljúga á ný en fram kemur að áhrifin vegna kórónuveirufaraldursins séu að hafa gríðarleg áhrif á rekstur Avianca.

Fyrir lok ársins 2019 höfðu dótturfélög Avianca 156 flugvélar í flotanum en af þeim voru 143 farþegaflugvélar og 13 fraktflugvélar og þar af fimmtán skrúfuflugvélar.

Fyrir utan Kólumbíu þá hafa dótturfélög Avianca verið starfrækt meðal annars í Kosta Ríka, Ecuador, El Salvador, Guatemala, Nicaragua, Hondúras og í Perú og hafa félögin flogið til 114 áfangastaða í Suður-Ameríku.

Sögu Avianca má rekja alveg aftur til ársins 1919 en félagið var stofnað undir nafninu SCADTA sem stóð fyrir Sociedad Colombo Alemana de Transportes Aéreos eða Colombian-German Air Transport Company.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga