flugfréttir
Einn þekktasti listflugmaður Litháa lést í flugslysi
- Piper PA-38 Tomahawk fórst með tvo um borð
Donaldas Bleifertas flaug mest listflugvélinni LY-DON sem er af gerðinni Sukhoi Su-26
Einn reyndasti og þekktasti listflugmaður Litháa, Donaldas Bleifertas, lést sl. laugardag í flugslysi er flugvél af gerðinni Piper PA-38 Tomahawk, sem hann flaug, brotlenti skammt frá bænum Kena í Litháen.
Með Donaldas í för var einn farþegi, ættaður frá Ítalíu, og lést hann í slysinu. Sá
var 34 ára en Donaldas var sextugur, fæddur árið 1960.
Flugvélin var í eigu Vilniaus Dariaus ir Giréno flugklúbbsins sem á einnig
flugvélar af gerðinni Yakovlev Yak-52 og Cessna C172 en Donaldas var formaður
flugklúbbsins.
Sjálfur átti Donaldas Bleifertas listflugvél af gerðinni Sukhoi Su-26 (LY-DON) og hafði
hann tekið þátt í fjölda flugsýninga víðsvegar um Evrópu og unnið til fjölda
verðlauna í listflugi.
Flak Tomahawk-vélarinnar sl. laugardag
Félagi Donaldas segir að hann hafi verið einn besti listflugmaður landsins og hafði
hann varið titilinn í mörg ár í Litháen auk þess sem hann náði góðum árangri í Evrópumóti
í listflugi og lenti í 15. sæti á heimsmeistaramótinu árið 2015.
Félagi Donaldas, Jurgis Kairis, sem einnig er listflugmaður, segir að veður hafi allavega ekki átt hlut að máli.
„Það er ekki mikið sem ég veit um þetta. Allavega var veðrið mjög gott. Ég veit ekki hver tilgangur flugsins var. Ég
var ekki niðrá flugvelli þegar þetta gerðist en kem þarna síðar til að slá grasið og þá frétti ég af þessu“, segir Kairis í viðtali
við fjölmiðla.
Kairis segir að Donaldas hafi verið mjög reyndur og varkár flugmaður sem hafi flogið mjög reglulega. „Þetta var
flugvél sem var notuð í þjálfun og hann notaði hana til að þjálfa aðra listflugmenn“, segir Kairis.
Orsök slyssins eru enn óljós en rannsóknarnefnd flugslysa í Litháen rannsakar nú
orsök þess.
Tomahawk-vélin bar skráninguna LY-ATM
Donaldas var fæddur árið 1960
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.