flugfréttir
Miami Air gjaldþrota
- Fundu ekki nýja eigendur og breyttu gjaldþrotavernd í gjaldþrotaskipti
Boeing 737-800 þota Miami Air í flugtaki
Bandaríska flugfélagið Miami Air er gjaldþrota og hefur félagið hætt allri starfsemi en félagið sótti um að verða tekið til gjaldþrotaskipta sl. föstudag.
Miami Air sótti um greiðslustöðvun undir reglugerðinni Chapter 11 í lok mars en félagið varð mjög snemma fyrir
barðinu á kórónaveirufaraldrinum og sá mjög fljótt fram á mjög dökka tíma.
Miami Air, sem var stofnað árið 1990, var leiguflugvél sem hafði sex Boeing 737-800 þotur í flota sínum en félagið hafði sinnt leiguflugi fyrir til að mynda skemmtiferðaskipafélög, íþróttalið auk þess sem félagið hafði
samning við bandaríska herinn um flutning á herliði.
Miami Air hóf flugrekstur árið 1991 með Boeing 727 þotum
Að stofnun félagsins komu fimmtán frumkvöðlar sem allir höfðu mikla reynslu af rekstri flugfélaga en meðal þeirra voru George
Lyall og Ross Fischer en George hafði áður verið í stjórn Eastern Air Lines og Pan Am á meðan Ross kom frá PeopleExpress.
Miami Air hóf starfsemi sína í október árið 1991 með tveimur Boeing 727 þotum og árið 2000 var floti félagsins komin upp í átta
Boeing 727 þotur en fljótlega var farið að huga að nýrri þotum og varð Boeing 737 fyrir valinu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.