flugfréttir
Fækka flugvélum um þriðjung og segja upp fjórðung starfsfólks
Airbus-þota Brussels Airlines
Brussels Airlines ætlar að fækka flugvélum í flotanum um 30 prósent þegar félagið byrjar að fljúga á ný eftir COVID-19 heimsfaraldurinn auk þess sem til stendur að segja upp um fjórðung af starfsfólki.
Félagið tilkynnti í dag að nauðsynlegt væri að grípa til aðgerða til að tryggja það að félagið
nái að þrauka áfram og sjá til þess að einhver framtíð verði fyrir félagið eftir heimsfaraldurinn.
Brussels Airlines hefur í dag 54 flugvélar í flotanum en til stendur að fækka þeim niður í 38
flugvélar og þá verða flugleiðir, sem hafa ekki skilað félaginu neinum hagnaði, lagðar af.
Flugfélagið belgsíska, sem er dótturfélag Lufthansa Group, spáir því að það muni ná sér
eftir heimsfaraldurinn árið 2023 og er séð fram á að eftir það muni það byrja að skila inn hagnaði
á ný.
Félagið hætti öllu flugi tímabundið þann 21. mars sl. og kemur fram að félagið sé að tapa
um einni milljón evra á dag (159 milljónir króna) í tekjur sem félagið fer á mis við auk kostnaðar
vegna leigu á flugvélum og viðhaldskostnaði.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.