flugfréttir
Helmingi minna fé varið í framleiðslu á SpaceJet-þotunni
Mitsubishi Regional Jet (MRJ) sem í dag heitir SpaceJet
Japanski flugvélaframleiðandinn Mitsubishi Heavy Industries (MH) hefur tilkynnt að helmingi minna fé verði varið til framleiðslu á SpaceJet farþegaþotunni sem upphaflega var kynnt til sögunnar undir nafninu Mitsubishi Regional Jet (MRJ).
Fram kemur að áhrif kórónuveirunnar hafi haft mikil áhrif á framleiðsluna og eru tekjur
framleiðandans munn lægri sem krefst niðurskurðar en einnig stendur til að hætta
við framleiðslu á öðrum stærðarútgáfum af SpaceJet þotunni.
Nú þegar er búið að smíða sjö MRJ90 tilraunaþotur sem koma með rými fyrir
81 farþega og eina útgáfu af MRJ70 sem tekur 76 farþega en aldrei hefur verið tekin ákvörðun
varðandi smíði á SpaceJet MRJ100 þotunni en framleiðandinn tilkynnti í dag
að áætlanir varðandi þá þotu verði settar á hilluna.
Upphaflega stóð til að MRJ þotan kæmi á markaðinn árið 2013 en sex sinnum hefur
þurft að fresta verkefninu og er nú áætlað að fyrsta eintakið verði afhent á næsta ári en
fyrsta tilraunaþotan flaug sitt fyrsta flug árið 2015.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.