flugfréttir

Ætla ekki að losa sig við neinar A380 risaþotur

- Munu allar vera farnar að fljúga á ný sumarið 2022

23. maí 2020

|

Frétt skrifuð kl. 19:00

Þrjár af þeim 115 Airbus A380 risaþotum sem Emirates hefur í flota sínum

Tim Clark, forstjóri Emirates, blæs á þær sögusagnir sem ganga um að Emirates eigi eftir að hætta með flestar Airbus A380 risaþoturnar.

Clark segir að risaþotan muni halda áfram að spila stór hlutverk í flugflota Emirates og tekur fram að félagið stefni á að allar Airbus A380 þoturnar verði komnar aftur í umferð innan tveggja ára í kjölfar kórónaveirufaraldursins.

„Við erum ekki að fara að losa okkur við neinar Airbus A380 risaþotur fyrir utan þrjár sem stóð til að leggja og níu Boeing 777 þotur sem einnig fara út flotanum á þessu ári“, segir Clark.

„Airbus A380 skipar mjög stórt hlutverk í flota Emirates. Kannski er hún ekki að spila stórt hlutverk í dag og verður kannski ekki farin að fljúga eins mikið á næsta ári en árið eftir það þá verður hún farin að fljúga á fullu“, bætir Clark við.

Samkvæmt fréttaveitunni Bloomberg þá ætlar Emirates að taka við þremur Airbus A380 risaþotum til viðbótar en ætla hinsvegar ekki að taka næstu fimm sem félagið hafði pantað en félagið átti alls von á að fá 8 risaþotur frá Airbus sem pantaðar voru á sínum tíma.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga