flugfréttir

LATAM sækir um gjaldþrotavernd

26. maí 2020

|

Frétt skrifuð kl. 15:31

Dreamliner-þota í litum LATAM

LATAM, eitt stærsta flugfélag Suður-Ameríku, hefur sótt um gjaldþrotavernd og greiðslustöðvun en félagið hefur orðið mjög illa fyrir barðinu á COVID-19 heimsfaraldrinum.

Gjaldþrotaverndin nær til allra dótturfélaga LATAM sem starftrækt eru í Chile, Perú, Kólombíu og í Ekvador en þess má geta að kólumbíska flugfélagið Avianca greip einnig til svipaðra aðgerða fyrr í þessum mánuði.

Roberto Alvo, framkvæmdarstjóri LATAM, segir að flugfélagið hafi gengið inn í heimsfaraldurinn tiltölulega sterkt að vígi en eftir því sem leið á faraldurinn fór að grafa undan stoðum félagsins þar sem eftirspurn eftir farþegaflugi dróst saman í nánast ekki neitt.

„Við höfum gripið til ýmissa aðgerða til þess að milda áhrifin vegna faraldursins en óhjákvæmilegt hefur verið að fara aðrar leiðir en þá sem er best fyrir flugfélagið sem er að gera það rétta til að tryggja framtíð félagsins“, segir Alvo.

LATAM hefur nú þegar sagt upp 1.800 starfsmönnum af þeim 40 þúsund sem starfa hjá félaginu og er þegar búið að tryggja fjárhagsstuðning frá hluthöfum.

LATAM hefur um 180 milljarða króna í lausafé og mun félagið geta notað það fé til þess að endurreisa reksturinn með gjaldþrotaverndinni í stað þess að greiða kröfuhöfum.

Þá á félagið í viðræðum við stjórnvöld í Chile, Brasilíu, Kólombíu og Perú um aukna fjárhagsaðstoð til þess að tryggja störf og lágmarka frekari áhrif af COVID-19.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga