flugfréttir

Bókanir hrúgast inn hjá Ryanair

- Michael O´Leary telur að farþegafjöldinn verði aftur sá sami næsta sumar

27. maí 2020

|

Frétt skrifuð kl. 16:15

Boeing 737-800 þotur Ryanair

Írska lágfargjaldafélagið Ryanair segir að gríðarleg fjölgun hafi átt sér stað í bókunum á síðustu dögum eftir að félagið tilkynnti um fyrirhugaða endurkomu og fjölgun flugferða eftir COVID-19 heimsfaraldurinn.

Flestar bókanirnar sem Ryanair er að fá eru bókanir á flugsætum í júlí þrátt fyrir að bresk stjórnvöld hafa tilkynnt að allir þeir sem koma til Bretlands þurfi að fara í 14 daga sóttkví frá og með 8. júní.

Ryanair hafði upphaflega gert ráð fyrir að sætanýtingin myndi verða um 40% í júlí en eftir að félagið hefur orðið vitni að gríðalegum fjölda bókanna telur félagið að allt stefni í að sætanýtingin í júlí verði um 60 prósent.

Flestar bókanirnar eru frá farþegum sem stefna á að ferðast frá Írlandi og Bretlandi til Spánar, Ítalíu og til Portúgals og sér Ryanair jafnvel fram á að félagið þurfi ekki að segja upp eins mörgum starfsmönnum.

Mörg flugfélög hafa spáð því að það geti tekið allt að þrjú ár fyrir flugiðnaðinn að ná sér aftur á strik með sama farþegafjölda líkt og hann var fyrir kórónaveirufaraldurinn en Michael O´Leary, framkvæmdarstjóri Ryanair, er mun bjartsýnni og telur hann að farþegafjöldinn verði orðin sá sami næsta sumar, árið 2021.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga