flugfréttir
American hætt við að sækja um gjaldþrotavernd
- Telja sig sjá aukna eftirspurn eftir flugsætum
Flugfloti American Airlines á Dallas/Fort Worth flugvellinum
American Airlines er hætt við áform um að sækja um gjaldþrotavernd og greiðslustöðvun en Doug Parker, framkvæmdarstjóri félagsins, segir að eftirspurnin hafi verið að aukast sl. daga.
„Að sækja um gjaldþrotavernd þýðir að flugfélagi hafi misheppnast. Við ætlum ekki að gera það. Ég held að
það sé ekkert flugfélag í Bandaríkjunum að fara á hausinn vegna þessara krísu sem er núna að ganga yfir“, sagði
Parker á ráðstefnu sem fram fór í dag.
Parker gerir samt ráð fyrir að umsvif bandarísku flugfélaganna eigi eftir að verða um 10 til 20 prósent
minni sumarið 2021 og fer afkoma flugfélaga að mestu eftir því hversu fljótt eftirspurnin á eftir að koma til
baka.
Fyrr í þessum mánuði sagði Dave Calhoun, framkvæmdarstjóri Boeing, að eitt tiltekið bandarískt flugfélag
ætti eftir að verða gjaldþrota í haust vegna COVID-19 heimsfaraldursins þegar fjárhagsaðstoð bandarísku
ríkisstjórnarinnar til flugfélaga vestanhafs rennur úr gildi.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.